

Með honum ríða örfáir skjaldsveinar í stöðugri leit að heilögu stríði.
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Sjálfstæðisflokkurinn á sinn Don Kíkótí. Að sögn
kunnugra ku hann ekki hafa brosað í áratugi og fer ástandið síst batnandi. Með
honum ríða örfáir skjaldsveinar í stöðugri leit að heilögu stríði. Nýverið gekk
Don Kíkóti fram á verðuga vindmyllu, þriðja orkupakkann.
Boðar Don Kíkóti upplausn og endalok sjálfstæði
Íslands ef Alþingi samþykkir pakkann. Talað er ýmist með miklum
tilfinningaþrunga eða beinhörðum hótunum beint að þingmönnum flokksins sem ekki
fylgja Doninum að málum.
Minna er um málefnaleg rök þrátt fyrir að Sansjósar
flokksins hafi gert sitt besta að kalla þau fram hjá Doninum.
En nú býr svo við að Doninn hefur spilað út spaða
ásnum og það daginn eftir þjóðhátíðina. Þvílík bomba. Komið hefur í ljós að það
vantar einn bolla í kaffistell eldri sjálfstæðismanna eftir óvænta úrsögn
peningalegs félagsmanns.
Kæmi ekki á óvart að sjálfstæðismenn sem eru
samþykkir orkupakkanum séu lafhræddir við tíðindin - „Shaking in their boots“
Þessi frétt Don Kíkótí sjálfstæðismanna birtist fyrst á miðjan.is.