
Er einhver ástæða til að taka hinn hola hljóm lukkuriddaranna alvarlega?
Bolli Héðinsson hagfræðingur skrifar:
Það hlýtur að vera grátlegt fyrir heiðarlega efasemdarmenn um
orkupakkann að mest skuli heyrast frá þeim lukkuriddurum sem hæst hafa um
nauðsyn þess að þjóðin fái notið orkuauðlinda sinna þó þeir megi ekki heyra á
að það minnst að þjóðin fái notið arðsins af fiskimiðunum!
Og þeir hinir sömu
lukkuriddarar, sem fara mikinn og krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um
orkupakkann, þó þeir virði í engu baráttuna fyrir nýrri stjórnarskrá, sem mundi
auðvelda slíka þjóðaratkvæðagreiðslu.
Er einhver ástæða
til að taka hinn hola hljóm lukkuriddaranna alvarlega? Hafa þeir ekki dæmt sig
sjálfir úr leik og skákað sér út í horn umræðunnar um orkupakkann?
Þessi frétt Þjóðareign á orku en ekki fiskimiðum birtist fyrst á miðjan.is.