


Fyrsta skrefið í loftlagsmálum er því að taka völdin af kapítalinu.
Gunnar Smári skrifar:
Það er ekki hægt að að bjarga jörðinni og
lífsskilyrðum okkar nema fella fyrst kerfið sem veldur eyðingu lífsgæða.
Kapítalisminn brýtur ekki aðeins niður samfélög heldur eyðir náttúru- og
loftlagsgæðum. Fyrsta skrefið í loftlagsmálum er því að taka völdin af
kapítalinu. Allar aðgerðir innanóbreytt kerfis kapítalistanna eru til einskis.
Án sósíalískrar byltingar, þar sem völdin eru tekin af kapítalistunum og færð
almenningi, mun samfélagið ekki aðeins leysast upp í vaxandi ójöfnuði, ófriði
og óréttlæti heldur munu lífsskilyrði okkar eyðast. Þau sem ekki geta ímyndað
sér veröldina án kapítalisma eru í reynd tilbúin að fórna samfélaginu og
lífsskilyrðum komandi kynslóða. Þau sem trúa á samfélag án alræðis auðvaldsins
öðlast von um betra samfélag og að hægt sé að bjarga jörðinni frá eyðileggingu
kapítalismans.
Þessi frétt Kapítalisminn eyðir náttúru- og loftlagsgæðum birtist fyrst á miðjan.is.