

Borist hefur augljós stríðsyfirlýsing frá ríkidæminu ÍSAM.
Tilgangur ÍSAM er að hafa sem mest áhrif á launafólk sem nú greiðir atkvæði um
nýgerða kjarasamninga. ÍSAM leggst gegn samnigunum. Þrátt yfir klaufalegar
eftiráskýringar um annað.
Margt fólk hefur tjáð sig um háttarlag fóksins í ríkidæminu.
Sólveig Anna á sennilega bestu skrifin. Hún skrifar:
„ÍSAM auðvaldið útvegar
kennsluefnið í viðvarandi kennslustundina sem við sitjum öll um þessar mundir.

Hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar sem hefur verið
troðið ofaní okkur eins og kássu búinni til úr grænum baunum, sýrópi,
fransbrauði, kexi, síld og tannkremi (og argað um leið og við kúgumst: Þetta er
víst gott, aumingi!) hefur sem grundvallarlygi að ekkert sé betra fyrir
lýðræðið en óheft markaðsfrelsi. En ekkert er and-lýðræðislegra en auðvaldið,
það er gömul saga og glæný. Ætli við verðum ekki bara að vera pínku glöð yfir
því að Hermann afhjúpar sig og sinn þankagang svona rösklega. Það hlýtur að
færa okkur endurnýjaðan baráttuanda og skarpan fókus á það hversvegna
breytingar eru nauðsynlegar í samfélaginu.“
Fleiri fyrirtæki hafa hækkað eigin vöru. Sama á að gilda um þau. Við eigum einnig að sniðganga þau rétt eins og byrjað er að gera við ÍSAM. Valdið er okkar – ekki þeirra.
-sme
Þessi frétt Stríðsyfirlýsing frá ríkidæminu ÍSAM birtist fyrst á miðjan.is.