
Árásar ungliða Sjálfstæðisflokksins á almenning undir forystu dæmds stríðsglæpamanns, sem markaði endanlegan samruna Nasistaflokksins inn í Sjálfstæðisflokkinn.
Gunnar Smári skrifar:

Í tilefni þess að í dag eru 70 ár liðin frá að
hvítliðar Sjálfstæðisflokksins réðust á almenning á Austurvelli undir forystu
Ólafs Péturssonar, manns sem hafði stuttu áður verið dæmdur í tuttugu ára
fangelsi í Noregi fyrir að hafa njósnað um og komið fjölda fólks í
útrýmingarbúðir nasista, en sem að ósk íslensku ríkisstjórnarinnar og vegna
þrýstings Sjálfstæðisflokksmanna, var fluttur til Íslands þar sem hann átti að
afplána sinna dóm, sem hann aldrei svo gerði, ekki einn dag, ekki korter fyrir allt það fólk sem hann svipti lífi; í
tilefni 70 ára afmælis þessarar árásar ungliða Sjálfstæðisflokksins á
almennings undir forystu dæmds stríðsglæpamanns, sem markaði endanlegan samruna
Nasistaflokksins inn í Sjálfstæðisflokkinn; legg ég til að forysta Sjálfstæðisflokksins
biðjist afsökunar á glæpum flokksins gagnvart þjóðinni og stuðningi hans og
vernd yfir gyðingahöturum og öðrum samverkamönnum nasista.
Þetta er sérstaklega mikilvægt í
dag þegar áhrifafólk í flokknum tekur undir útlendingaandúð hér innanlands og
lýsir yfir stuðningi við ráðamenn í útlöndum sem magna upp andúð gagnvart
innflytjendum og öðrum veikstæðum hópum.
Þessi frétt Sjálfstæðisflokkur biðjist afsökunar á eigin glæpum birtist fyrst á miðjan.is.