

Verður byrjað á að skera niður í heilbrigðiskerfinu og félagslegri þjónustu?
„Það
er augljóst að tími aðhalds og niðurskurðar er genginn í garð. Við erum að
sigla inn í efnahagslegan öldudal, en þeir hafa oft verið dýpri en sá, sem nú
blasir við,“ skrifar Styrmir Gunnarsson á vefsíðu sína, styrmir.is.
„Þetta
er ekkert nýtt fyrir einkafyrirtækin í landinu, sem hafa alltaf brugðizt við
slíkum aðstæðum með niðurskurði á kostnaði, sem oftar en ekki þýðir uppsagnir
starfsmanna.
Öðru
máli gegnir um opinbera aðila, sem hafa alltaf átt erfitt með að skilja svona
aðstæður. Það verður fróðlegt að fylgjast með því, hvar niðurskurðurinn kemur
fram hjá ríki og sveitarfélögum.
Verður
byrjað á að skera niður í heilbrigðiskerfinu og félagslegri þjónustu eða er
hugsanlegt að ríkisvaldið átti sig á að eðlilegra er að byrja á ofvaxinni
utanríkisþjónustu og loka sendiráðum, sem hvort sem er hafa engin verkefni að
fást við?
Hvert
valið verður mun segja mikla sögu um landsstjórnina,“ skrifar ritstjórinn
fyrrverandi.
Þessi frétt Verður verkefnalausum sendiráðum lokað? birtist fyrst á miðjan.is.