Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6246

Að fella sjálfan sig

$
0
0

Ef tjónið er svona mikið afhverju er þá ekki búið að semja.

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Það var þungt hljóðið í framverði ferðaþjónustunnar í hádegisfréttum RÚV
á laugardaginn var. Telur hinn stæðilegi Jóhannes Þór Skúlason að tjón af
væntanlegu tveggja daga verkfalli Eflingar og VR muni nema allt að hálfum
milljarði króna.

Ok og vá í sömu andránni segi ég nú. Ef tjónið er svona mikið afhverju
er þá ekki búið að semja.

Launakröfurnar eru hófstilltar og snúast um að starfsmennirnir geti
framfleytt sér milli launaumslaga. Aldrei mun það teljast mikil tilætlunarsemi.

Tjónið sem verkföllin skapa sýnir vel hversu verðmætir lægst launuðu
starfsmenn hótela og rútufyrirtækja eru.

Ljóst má vera að eigendur og æðstu stjórnendur fyrirtækja í
ferðaþjónustu vilja ekki deila verðmætasköpun starfsmanna sinna með sanngjörnum
hætti. Rörsýn elítuhópsins mun á endanum fella þá sjálfa ef þeim snýst ekki
fljótt hugur. Þá verður ekki feitan gölt að flá.

Þessi frétt Að fella sjálfan sig birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6246