Clik here to view.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Rýrnandi hlutur Sjálfstæðisflokksins í kjörfylgi tengist því að sá sem er með silfurskeið þversum í munninum nær ekki talsambandi við venjulegt fólk.
Ragnar Önundarson skrifar:
Clik here to view.

Frá því að tekið var að tengja
virkjanaframkvæmdir við sölu orkunnar til stóriðju (project finance) á 7da
áratug 20. aldar hefur þjóðinni statt og stöðugt verið lofað að í framtíðinni
muni hún njóta afskrifaðra virkjana í lágu orkuverði. Við þessi loforð ber að
standa. Hrein og ódýr orka eru meðal þeirra fáu kostnaðarþátta sem eru búsetu
fólks í þessu landi í vil.
Hugmyndin um „þjóðarsjóð“ sem
ávinningurinn verði í staðinn lagður í er allrar athygli verður, en mundi rýra
lífskjör okkar til skamms tíma. „In the long run we are all dead“ er stundum
sagt. Þjóðarsjóður mundi fleyta ávinningnum enn lengra inn í framtíðina, svo
við mundum ekki njóta heldur afkomendur okkar.
Ráðamenn fæddir
með silfurskeið þversum í munninum ættu að láta fara fram rannsókn á lífskjörum
fólks sundurliðaða eftir aldurshópum og átta sig á stöðunni. Rýrnandi hlutur
Sjálfstæðisflokksins í kjörfylgi tengist því að sá sem er með silfurskeið
þversum í munninum nær ekki talsambandi við venjulegt fólk.
Þessi frétt Með silfurskeið þversum í munninum birtist fyrst á miðjan.is.