Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6190

Segja Umboðsmann skuldara í samstarfi við kvalarana

$
0
0

Hagsmunasamtök heimilanna senda:

Opið bréf til Umboðsmanns skuldara
vegna morgunverðarráðstefnu í samstarfi við Samtök fjármálafyrirtækja þann 25. mars
2019

Sæl Ásta Sigrún,

Við hjá Hagsmunasamtökum heimilanna
lýsum furðu okkar á samstarfi embættis Umboðsmanns skuldara við Samtök
fjármálafyrirtækja og teljum fyrirhugaða morgunráðstefnu í samstarfi við þau
vera kalda kveðju til skjólstæðinga embættis þíns.

Frá hruni hafa lántakendur mátt sitja undir skelfilegum yfirgangi
fjármálafyrirtækja eins og þínu embætti ætti að vera fullkunnugt um, enda
stofnað til þess  að aðstoða þá sem lentu í klónum á þessum fyrirtækjum í
kjölfar hrunsins.

Þér ætti því líka að vera fullkunnugt um að frá hruni hafa a.m.k.
15.000 fjölskyldur misst heimili sín í hendurnar á þessum fyrirtækjum og
kennitöluflökkurum, oft vegna ólögmætra aðgerða þeirra.

Aukin heldur hafa 117.000 árangurslaus fjárnám verið gerð frá
hruni af þessum sömu fyrirtækjum.

117.000 í 340.000 manna þjóðfélagi!

Á bak við þessa ótrúlegu tölu eru nokkrir tugir þúsunda einstaklinga
sem hafa verið svipt „fjárhagslegum réttindum“ sínum, þau eiga þannig ekki kost
á lánafyrirgreiðslum, kreditkortum eða nokkru því sem þarf til að geta verið
virkur þátttakandi í samfélaginu.

Þetta veist þú og þú ættir einnig að vita að þessum aðgerðum
fjármálafyrirtækjanna er ekki enn lokið, þau eru enn þá að valta yfir heimili
landsins í krafti yfirburðastöðu sinnar.

Við viljum líka minna á að fjárhagsleg, sem og andleg áhrif
þessara aðgerða fjármálafyrirtækjanna á einstaklinganna sem fyrir þeim urðu,
eru langvarandi. Margir, meðal annars þínir skjólstæðingar, munu sitja uppi með
afleiðingarnar allt sitt líf og við sjáum þær einnig í auknum kvíða hjá bæði
 börnum og fullorðnum, ásamt kulnun, svo ekki sé minnst á skelfilegan
leigumarkað sem mörg fórnarlömb fjármálafyrirtækjanna eru föst á.

Með fyrirhuguðum morgunverðarfundi ert þú að taka þér stöðu við
hlið Samtaka fjármálafyrirtækja því hann er svo til algjörlega í höndum þeirra:

·       Yfirlögfræðingur Samtaka fjármálafyrirtækja setur fundinn

·       Sviðstjóri hjá Arion banka heldur erindi og situr í pallborði

·       Framkvæmdarstjóri Framtíðarinnar, lánafyrirtækis í eigu Gamma,
heldur erindi

·       Stjórnarformaður Creditinfo heldur erindi og er í pallborði

·       Verkefnastjóri fjármálafræðslu hjá Samtökum fjármálafyrirtækja
stýrir pallborðsumræðum

·       Framkvæmdarstjóri Almenna lífeyrissjóðsins er fundarstjóri

Fulltrúar neytenda eru eftirfarandi:

·       Umboðsmaður skuldara

·       Formaður neytendasamtakanna

·       Sviðsstjóri hjá Neytendastofu

6 – 3 fyrir fjármálafyrirtækjunum!

Fyrir utan það að staðan sé augljóslega Samtökum
fjármálafyrirtækja í vil, þá verður því miður að segjast að engin ykkar sem
eruð talsmenn neytenda í þessum fundi, hafið verið talsmenn réttinda  neytenda
á fjármálamarkaði hingað til.

Formaður Neytendasamtakanna á meira að segja rætur að rekja til
fjármálafyrirtækjanna sem lengi vel voru helstu stuðningsaðilar hans.

Öllum sem fylgst hafa fylgst með málum
ætti að vera það fullljóst að þeir einu sem virkilega hafa barist fyrir
réttindum neytenda á fjármálamarkaði frá hruni eru Hagsmunasamtök heimilanna.

Þeim var ekki boðin þátttaka og hafa ekki einu sinni fengið boð um
að mæta á þennan fína fund.

Hvernig getur þú Ásta Sigrún, í ljósi sögunnar og hlutverks
embættis Umboðsmanns skuldara, varið þetta samstarf með Samtökum
fjármálafyrirtækja?

Þessi fundur er eins og blaut tuska framan í skjólstæðinga þína og
alla þá sem lent hafa í “aðgerðum” fjármálafyrirtækjanna frá hruni.

Með þessu samstarfi við Samtök
fjármálafyrirtækja er embætti Umboðsmanns skuldara að taka sér stöðu með þeim
sem valdið hafa bæði skjólstæðingum þess, félagsmönnum Hagsmunasamtakanna
heimilanna og raunar landsmönnum öllum ómældum skaða sem mun seint eða aldrei
verða að fullu bættur.

Hagsmunasamtök heimilanna Ármúla 5, 108 Reykjavík

Þessi frétt Segja Umboðsmann skuldara í samstarfi við kvalarana birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6190