Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6246

Láglaunastefnan bítur

Image may be NSFW.
Clik here to view.

Image may be NSFW.
Clik here to view.

Image may be NSFW.
Clik here to view.

Láglaunastefnan í góðæri síðustu ára er sennilega að koma í bakið á henni.

Sigurður G. Guðjónsson lögmaður skrifar:

Image may be NSFW.
Clik here to view.

Mogginn segir í dag að verkföll hótel þerna, sem Sólveig Anna er ánægð með, hafi þegar valdið tjóni. Má vera að það sé rétt. Þekki ekki launakjör hótel þerna. Þau munu ekki vera há og í raun svo lág að þau duga ekki til framfærslu, hvað þá nokkurrar eignamyndunar hér á landi, enda mun starfi þessu, eins og flestum láglaunastörfum hér á landi vera sinnt af erlendu vinnuafli. Merkilegt að ferðaþjónustan sem grætt hefur á tá og fingri frá hruni geti ekki greitt laun sem lifa má af á Íslandi og eignast eitthvað.

Láglaunastefna ferðaþjónustunnar í góðæri síðustu ára er sennilega að koma í bakið á henni. Hvort það er tjón ferðaþjónustunnar skal ósagt látið. Ef svo er er hæpið að skella því á láglaunafólk.

Fengið af Facebooksíðu Sigurðar.

Þessi frétt Láglaunastefnan bítur birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6246