Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6241

Gýligjöf ríkisstjórnarinnar

$
0
0

Jöfnunaráhrif breytinganna eru vart mælanleg þegar litið er til kaupmáttar.

Gýligjöf ríkisstjórnarinnar

Jóhannes Þorvarðarson skrifar:

Ríkisstjórnin boðar nýtt lægsta tekjuskattsþrep í tengslum við nýja kjarasamninga. Tekjuskatturinn lækkar í 18,5% eða um 4 prósentustig. Meðalútsvar verður óbreytt miðað við kynningu ríkisstjórnarinnar. Í henni segir einnig að persónuafsláttur haldist óbreyttur til ársloka 2022. Þessar tillögur ganga upp allan launastigann eða svo til.

Launamaður með nákvæmlega 325.000 krónur á mánuði fær mest eða 2% lækkun á tekjuskatti í krónum talið eftir 4 ár. Aðrir fá minna. Launamaður með yfir 875.000 krónur á mánuði borgar hærri tekjuskatt eftir 4 ár. Hækkunin verður mest 0,38%.

Þar sem ekki er gott að átta sig á hvað hægt er að kaupa fyrir 1.000 krónur eftir 4 ár er nauðsynlegt að umreikna tillögur ríkisstjórnarinnar yfir í verðgildi dagsins í dag. Í útreikningum er tekið tillit til verðrýrnunar persónuafsláttar sem á að vera óbreyttur næstu 4 árin eins og áður segir.

Tillögur ríkisstjórnarinnar hljóða upp á 4.000 krónur á mánuði fyrir launþegann sem mest fær og sá launalægsti fær 350 krónur. Launþegi með 850.000 krónur fær 1.600 krónur í lækkun.

Kynning ríkisstjórnarinnar er villandi. Aðeins lítill hópur mun fá tekjuskattslækkun upp á mögur 2% í krónum mælt eftir heil 4 ár. Meðallækkun tekjuskatts í tillögunum er 1% mælt í krónum og meðalhækkun hjá allra hæstu launum er 0,22%. Ekki er nú jafnvæginu fyrir að fara hér.

Launþegum var boðin gýligjöf sem launþegasamtökin endursendu með póstsendlinum sem boðnar voru 350 krónur í lækkun tekjuskatts. Jöfnunaráhrif breytinganna eru vart mælanleg þegar litið er til kaupmáttar.

Skynsamlegast hefði verið að nota allt svigrúmið til tekjuskattslækkunar á laun undir 500.000 krónum í ljósi þess að hinum launahærri munar ekkert um sýna litlu skattalækkun. Það er í samræmi við fallandi not skattkerfisbreytinga til þess launaháa. Þannig útfærsla hefði afstýrt boðun verkfalla.

Þessi frétt Gýligjöf ríkisstjórnarinnar birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6241