Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6232

Reiður almannatengill

$
0
0

Friðjón
R. Friðjónsson almannatengill sýnir ójafnvægi á fésbókinni.

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Friðjón R. Friðjónsson almannatengill sýnir ójafnvægi á fésbókinni. Segir forystu launamanna vilja upplausn, en ekki kjarasamninga. Í beinu framhaldi fullyrðir reiður tengillinn að nafngreindur einstaklingur og meintir skósveinar hans stjórni hverjir eru í forystu hjá launþegahreyfingunni. Gífuryrðin eru án rökstuðnings og því haldlaus.

Hvað með forystu atvinnurekenda í þessu samhengi. Vilja þeir klára kjarasamninga. Hafa þeir boðið nægilega vel til að ná samningum. Af hverju ávarpar reiður almannatengillinn ekki frammistöðuleysi forystu atvinnurekenda með sama hætti. Hafa þeir haft hagsmuni fyrirtækjanna eða þjóðarbúsins að sínu leiðarljósi í kjaraviðræðunum. Hvernig ætlar forystusveit atvinnurekenda að útskýri árangursleysið við samningaborðið nú þegar verkfall blasir við.

Það virðist vera nauðsynlegt að benda reiðum almannatenglinum á að samningar nást ekki nema báðir aðilar séu sáttir við samninginn.

Launþegahreyfingin hefur sýnt fram á með gildum rökstuðningi að laun fjölmargra duga ekki sem farborði.

Áleitin spurning í samhenginu er hvort fyrirtæki eigi rétt á sér ef launagreiðslur duga ekki fyrir nauðþurftum.

Önnur áríðandi spurning er hvort stjórnendur fyrirtækja sem ekki treysta sér til að borga laun sem duga til fullrar framfærslu séu nægilega færir rekstrarmenn. Píramídinn stendur yfirleitt á haus í illa reknum fyrirtækjum.

Þessi frétt Reiður almannatengill birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6232