

Þá ákvað Guðlaugur Þór að gefa 30 milljónir til Venesúla.
Gunnar Smári skrifar:
Þið afsakið en ég er ekki alveg að
kveikja á manúðaraðstoð viljugra þjóða til Venesúela undir forystu Trump og
haukanna í Washington. Fyrst er gullforði landsins, rúmlega 651 tonn, sem
geymdur er í Englandsbanka, frystur svo ekki er hægt að ganga á þennan varasjóð.
Verðmæti þessa er um 3.375 milljarðar króna.
Eftir að þessi varaforði var frystur
í von um að venesúelsk stjórnvöld gætu ekki greitt út laun og ekki keypt mat og
nauðsynlegar vistir til landsins (landið er háðara innflutnings en flest önnur lönd, eins og algengt er um
olíuútflutningsríki) þá ákvað Guðlaugur Þór Þórðarson að gefa 30 m.kr. til
Venesúela, andvirði um 1/112.624 af gullforðanum. Nýsjálendingar voru að
samþykkja að gefa 500 þús. $ í hjálpargögn, um 1/56.359 gullforðanum.
Hjálpargögnin
sem eru við landamæri Venesúela og Kólumbíu nú eru að viðlíka verðmæti, dropi
við hliðina á þeim verðmætum sem viljugar þjóðir halda frá Venesúela. Nú þekki
ég Maduro ekki neitt, en ég þekki til haukanna í Washington. Það er ekki hægt
að finna hræsnisfyllra ofbeldispakk í víðri veröld, þetta er sá hópur núlifandi
manna sem hefur flest mannslíf á samviskunni og mesta eymd meðal fólks.
Það er ómögulegt
að nokkur heiðvirð manneskja taki þátt í leik þeirra, sem ætíð er háður í þágu
auðkýfinga í Bandaríkjunum en snýst aldrei nokkurn tímann um mannúð, lýðræði og
frelsi. Þetta er pakk sem telur sig hafa rétt til að myrða, pynta, kúga og
svelta alla sem hentar þeim hverju sinni; algjörlega ærulaust fólk, sannkallað
skítapakk.
Þessi frétt Þetta er sannkallað skítapakk birtist fyrst á miðjan.is.