

Þau eru sammála um að
fullkomin stöðnun verði í lífskjörum þeirra verst settu.
Sigurjón M. Egilsson skrifar:
Ríkisstjórn Bjarna og Katrínar fær
varla meira svigrúm hjá þjóðinni. Þau hafa leikið of marga afleiki. Áfram verður
ekki haldið. Skömm þeirra er mikil. Meiri en nóg.
Blekkingarleikur þeirra í
skattamálunum var hvoru tveggja, óheiðarlegur og barnalegur. Héldu þau
virkilega að talnaglöggt fólk myndi kíkja sjónarspili Bjarna hráu og ómeltu? Ó,
nei.
Vilhjálmur Birgisson rauk ekki bara
einn af skrípafundinum í stjórnarráðinu. Megin þorri launafólks fylgdi honum, í
huga sér. Vilhjálmur sýndi hárrétt viðbrögð. Fólk á ekki að sitja þegjandi
undir hverju sem er.
Þetta gengur ekki lengur. Nú þarf
mikið að koma til. Auðvaldið nær sífellt meiri og betri tökum á sameiginlegum
auði þjóðarinnar og auðlindum hennar. Nú hafa Bjarni og Katrín opinberað sig
svo ekki verður um villst hvað býr í huga þeirra.
Þau eru sammála um að fullkomin
stöðnun verði í lífskjörum þeirra verst settu. Það má aldrei verða. Það verður
að stöðva áform þeirra.
Þjóðin kann aðferðina, hefur beitt
henni áður og þarf sýnileg að grípa til neyðaraðgerða nú.
Þessi frétt Hafa sýnt sitt rétta andlit birtist fyrst á miðjan.is.