

Ég er búinn að reikna og reikna, en ég þori ekki að sýna niðurstöðurnar.

Gunnar Smári skrifar:
Því meira sem
ég skoða sameiginlegt tilboð SA og ríkisstjórnarinnar því gáttaðri verð ég. Það
er í reynd verið að bjóða fólki algjöra stöðnun í lífskjörum næstu þrjú árin. Þetta útspil ríkisstjórnarinnar verður
lengi í minnum haft sem stórkostlegur pólitískur afleikur.
(Ég er búinn að reikna og reikna, en ég þori ekki að sýna niðurstöðurnar. Held ég hljóti að hafa reiknað vitlaust, og reikna upp á nýtt en fæ sömu niðurstöðu. Ef markmiðið er ekki að æsa til uppþota hafa ráðherrarnir mislesið stöðuna stórkostlega.)
Hér er óbreytt færsla forsætisráðherra frá því í gær:

„Við kynntum í dag tillögur okkar
um þriggja þrepa skattkerfi sem mun lækka skattbyrði á lægstu tekjuhópa um 80
þúsund krónur á ári. Þetta bætist ofan á þær viðbætur sem þegar eru komnar inn
í barnabótakerfið en þegar þetta er lagt saman munu tekjulágar barnafjölskyldur
hafa allt að 200 þúsund krónum meira úr að spila á ári.
Nýtt lægra þrep er ekki eina breytingin heldur afnemum
við líka samnýtingu þrepa sem er mikilvæg jafnréttisaðgerð en meira en 90% af
samnýtingu þrepa hefur hækkað ráðstöfunartekjur
karla og einungis um 9% kvenna. Þá er lagt til að viðmiðin í skattkerfinu
miðist við neysluvísitölu plús framleiðni. Slík samræming kemur í veg fyrir það
skattaskrið sem hefur verið gagnrýnt á undanförnum árum. Breytingarnar í dag
eru bæði jafnaðar- og jafnréttisbreytingar og færa skattkerfið í rétta átt.
Við undirbúning þessara tillagna
voru áhrif þeirra greind á ólíka hópa. Niðurstaðan hjá okkur er að jákvæð áhrif
séu mest á konur, ungt fólk, landsbyggð, öryrkjar, eldri borgarar og þá sem eru
á leigumarkaði.
Við ræddum fleiri aðgerðir í dag.
Við ætlum að lengja fæðingarorlofið í tólf mánuði, tryggja félagslegar lausnir
í húsnæðismálum og fara í alvöru aðgerðir gegn félagslegum undirboðum. Allt eru
þetta mikilvægar samfélagslegar umbætur sem skipta allan almenning á Íslandi
máli. Stjórnvöld munu halda áfram að vinna í þessa átt.“
Þessi frétt Pólitískur afleikur Bjarna og Katrínar birtist fyrst á miðjan.is.