Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6248

Fólk á ekki að þjóna bönkunum

$
0
0

Er ekki bara fínt að erlendir bankar taki á sig áhættuna af því að lána til íslenskra fyrirtækja.

Gunnar Smári skrifar:

Hagnaður
bankanna þriggja eftir greiðslu skatta er 37 milljarðar króna. Þeir hafa því
endalaust svigrúm til að keppa við lífeyrissjóði um húsnæðismál og erlenda
banka um fyrirtækjalán. En það getur varla verið hagsmunir okkar.

Er ekki bara
fínt að erlendir bankar taki á sig áhættuna af því að lána til íslenskra
fyrirtækja, kemur nánast á sama stað niður og ef erlendir bankar settu hér upp
útibú og ykju hér samkeppni.

Og hvað er að
því þótt lífeyrissjóðir sinni stærstum hluta húsnæðislána? Ekki nokkur skapaður
hlutur. Bankastjórinn gleymir því að bankarnir eiga að þjóna samfélagi, þetta á
ekki að vera öfugt; að fólkið þjóni bönkunum.

Þessi frétt Fólk á ekki að þjóna bönkunum birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6248