Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6196

Enn ein niðurlæging VG

$
0
0

Ég velti þessu fyrir mér - hverju
áorkuðu Vg með stjórnarsetunni?

Haukur Arnþórsson skrifar:

Maður spyr sig hvaða sigrar fengu
Vg til þess að fara í ríkisstjórn. Hverju breytir seta flokksins fyrir
þjóðfélagsþróunina? Hér virðist komið að enn einni niðurlægingu flokksins - eða
kannski finnst þingmönnum flokksins þetta eðlilegt (það skal þó tekið fram að
Rósa Björk Brynjólfsdóttir kaus á móti formennsku Jóns Gunnarssonar og hefur
þannig stimplað sig út).

Með Jón Gunnarsson sem formann umhverfis- og
samgöngunefndar fær vonarstjarna Vg í þessari ríkisstjórn, umhverfisráðherrann, verulega sterka andstöðu í þingnefndinni og mun
hann varla koma nokkru frumvarpi sem skiptir máli í gegnum þingið. Nefndin
verður engin umhverfisnefnd, en þess meiri samgöngunefnd.

Áður hefur komið fram að Svandís
Svavarsdóttir mun ekki beita sér gegn einkarekstri í heilbrigðisþjónustunni.

Ég velti þessu fyrir mér - hverju
áorkuðu Vg með stjórnarsetunni?

Þessi frétt Enn ein niðurlæging VG birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6196