

...eftir að Vg fór í stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum og lét opinberlega af allri vinstri stefnu.
Haukur Arnþórsson skrifar:
Það vekur eðlilega athygli hvað vinstra fólk er að rumska - Sósíalistaflokkurinn er kominn með 5,3% fylgi á landsvísu (sem þýðir töluvert hærra hlutfall hér í bænum, einkum Reykjavík norður).
Eftir langvarandi hægri stjórn
Samfylkingarinnar í Reykjavík þar sem byggt er fyrir forríkt fólk, en fátækir
og eru skildir útundan - og nú eftir að Vg fór í stjórnarsamstarf með
Sjálfstæðisflokknum og lét opinberlega af allri vinstri stefnu.
Ég hef gaman af því að Styrmir
Gunnarsson sá þessa þróun fyrir og taldi að ofurlaun æðstu stjórnenda
myndu kveikja elda sem erfitt gæti verið að slökkva. Vissulega held ég að margt
fleira hafi komið til - en gaman af því að menn sjái hvert leiðin liggur. Það
eru ekki allir stjórnmálaskýrendur sjáendur.
Sósíalistaflokkurinn
er flokkur hins breiða fjölda verkafólks og fátæks fólks - þar með taldir
aldraðir og öryrkjar - sem er nóg boðið.
Þessi frétt Vinstra fólk er að rumska birtist fyrst á miðjan.is.