Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6238

Nýtt klúður í hverri viku

$
0
0

„...nema
menn náttúrulega gangi í smiðju borgarstjóra og axli ábyrgð með því að sitja
áfram.“

Marinó G. Njálsson skrifar:

Lögmaður Samherja reiðir hátt til höggs og nú er spurningin hverju æðstu menn Seðlabankans svara. Hún kemur með margar hnyttnar tilvísanir, en þessi slær allt út:

„Umboðsmaður Alþingis sá ástæðu til að minna forsvarsmenn seðlabankans á að í jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar fælist ekki að ef bankinn hefði brotið gegn einum aðila ætti hann að halda áfram og brjóta gegn öllum öðrum. Út á það gengi jafnræðisreglan ekki.“

Ég á svo sem ekki von á því að neinn axli ábyrgð á þessari útreið sem Seðlabankinn fær hjá umboðsmanni Alþingis, nema menn náttúrulega gangi í smiðju borgarstjóra og axli ábyrgð með því að sitja áfram.

Því miður hitti Bára Halldórsdóttir naglann á höfuðið, að það breytist aldrei neitt á Íslandi, vegna þess að gamlir hlutir falla í gleymsku um leið og nýtt klúður kemur upp. Þar sem nýtt klúður kemur upp vikulega, þá fennir yfir gömul spor á stuttum tíma.

Þessi frétt Nýtt klúður í hverri viku birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6238