Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6192

Sitthvað er öryrki og útgerðarmaður

$
0
0

Ríkisvaldið lítur þegnanna ólíkum augum,
það fer eftir stétt þeirra og stöðu og ekki síst út frá efnahag þegnanna.

Á Miðjunni í gær voru tvær fréttir, hlið
við hlið, þar sem hugur ráðafólks opinberaðist með óvenju skýrum hætti. Önnur
sagði frá ömurlegri framkomu ríkisstjórnar Íslands gagnvart allra fátækasta
fólki landsins og hin sagði frá hvernig sjávarútvegsráðherra tók til baka
ákvörðun Fiskistofu um veiðibann togara sem stofan telur að hafa stundað
ólöglegt brottkast á fiski.

Í einum vettvangi henti ráðherrann
Fiskistofu út í horn, tók af henni völdin, bjargaði þar með útgerðinni frá því
að taka út sína refsingu. Ríki útgerðarmaðurinn getur verið glaður og á kannski
eftir að þakka fyrir sig, nema hann sé búinn að því, ekki veit ég það.

Í hinni fréttinni segir meðal annars: „Umboðsmaður
Alþing­is tók á ólög­leg­um bú­setu­skerðing­um gagn­vart ör­yrkj­um í júní
2018 eða fyr­ir rúmu hálfu ári og Trygg­inga­stofn­un rík­is­ins er enn ekki
far­in að borga sam­kvæmt úr­sk­urði hans. Þarna er verið að skerða ekki bara
fá­tækt fólk held­ur þá fá­tæk­ustu meðal fá­tækra á Íslandi. Þarna eru um
1.000 ör­yrkj­ar sem fá skert­ar bæt­ur frá TR og tug­ir ör­yrkja sem gert er
að lifa á minna en 80.000 kr. á mánuði og sum­ir fá svo til ekki krónu til fram­færslu.“

Það var Guðmundur Ingi Kristinsson,
þingmaður Flokks fólksins, sem skrifaði þetta.

Bæði þessi dæmi, um öryrkjana og útgerðina,
eru knúinn áfram með pólitískum vilja. Þau sýna vel hug ríkisstjórnarinnar og
flestra annarra þingmanna. Guðmundur Ingi Kristinsson stendur oftast nánast
einn í sinni baráttu.

Alþingi gat á einu augnabliki afgreitt
ný lög til þæginda fyrir fiskeldi á Vestfjörðum. Þá var víst vá fyrir dyrum. En
ekki þegar ríkið svínar á, þvert á gildandi lög, fólki sem hefur aðeins áttatíu
þúsund krónur á mánuði. Og öllum virðist skítsama.

Það er við hæfi að Guðmundur Ingi eigi
síðasta orðið: „Það er komið hálft ár frá niður­stöðu umboðsmanns Alþing­is og
enn verið að skerða bæt­urn­ar ólög­lega. Okk­ur ber að sjá til þess að fólk
sem í boði rík­is­ins lif­ir í al­gjörri fá­tækt og svelt­ur fái rétt sinn
strax, en ekki sé reynt að segja að erfitt sé fyr­ir Trygg­inga­stofn­un að
reikna þetta út.“

Þessi frétt Sitthvað er öryrki og útgerðarmaður birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6192