Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6202

Hannes Hólmsteinn fastur í skítadjobbi

$
0
0

Gunnar Smári skifar: Ég var blessunarlega búinn að gleyma að Hannes Hólmsteinn væri til þegar hann rak inn trýnið á þráð á veggnum mínum. Ég renndi þá niður vegginn hans hér á Facebook og sá að hann er enn að launa Bjarna Ben tíu milljónirnar. Það sem Bjarni var að kaupa af Hannesi var ekki skýrslan (sem Bjarni hefur örugglega hent ólesinni) heldur að Hannes héldi áfram rógi sínum, illmælgi og dylgjum um pólitíska andstæðinga Sjálfstæðisflokksins.

Maður finnur til með Hannesi að vera
fastur í þessu skítadjobbi. Og Bjarna líka, fyrir að geta ekki keypt betri róg af
skárri manni. Hannes kallar Dag borgarstjóra til dæmis ætíð Dagur Bergþóruson
Eggertsson Gnarrson. Fyrir hvern er þetta? Eru margir fimm ára í
Sjálfstæðisflokknum? Veggurinn hjá Hannesi minnir mig á það þegar við æskufélagarnir
fundum kassa með Íslenskri fyndni frá fjórða áratugnum í bílskúr heima hjá vini
okkar. Við lásum og lásum og trúðum ekki okkar eigin augum. Var fólk í gamla
daga svona tótalí steikt? Hver gat hlegið að þessu? Og þá af hverju? Hvað í
sögunni á að vera fyndið? Ég hvet ykkur öll til að lesa vegginn hans Hannesar,
þið borguðu fyrir þetta með skattinum ykkar svo þið eigið þetta skuldlaust.

Þessi frétt Hannes Hólmsteinn fastur í skítadjobbi birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6202