
Ragnar Önundarson skrifar: Frjálst framtak, frjáls viðskipti, frjáls
markaður, frjáls samkeppni, samningsfrelsi, tjáningarfrelsi. Öll þessi hugtök
heilluðu fyrir 40-50 árum. Með þessu móti yrði afl einstaklinganna til framfara
best virkjað og velferð heildarinnar hámörkuð. Hver og einn fengi sín notið
best.
EES-aðildin
gekk út á að tengjast stórum, virkum mörkuðum. Í því trausti að okkar markaðir
yrðu við þetta virkir í raun tókum við upp leikreglur evrópsks kapítalisma og
samkeppniseftirlit að evrópskri fyrirmynd.
Nú
horfumst við í augu við samþjöppun auðs, fákeppni og sjálftöku forréttindafólks
á næstum öllum sviðum viðskiptalífsins. Auðokun og fyrirtækjaræði blasa við,
þrátt fyrir þessi fallegu hugtök. Allt með góðfúslegu samþykki
samkeppnisyfirvalda. Merkilegt.
Fengið af Facebooksíðu Ragnars.
Þessi frétt „Nú horfumst við í augu við samþjöppun auðs“ birtist fyrst á miðjan.is.